Það eru oft skemmtilegir brandarar að ganga í vinnunni
Ella var á gangi þegar hún sá hvar lítill sætur froskur var fastur í gildru , um leið og hún losaði hann sagði froskurinn: Nú færð þú þrjár óskir uppfylltar en ég verð að segja þér frá því að það sem þú óskar þér fær maðurinn þinn tífalt meira af. Ella sem var mjög glöð og hugsaði með sér að það yrði allt í lagi . Fyrsta ósk hennar var að hún yrði fallegasta kona heims. Froskurinn varaði hana við og sagði henni að þá yrði maðurinn hennar einning fallegasi maður heims. Ella hugsaði með sér að það yrði fínt , hún væri hvort sem er fallegasta konan og að maðurinn hennar hefði ekki augun af henni . KAZAM..... og hún varð að fallegustu konu heims. Annari ósk sinni varði hún í að biðja um að verða ríkasta kona heims. Þá sagði froskurinn : Þá mun maðurinn þinn verða 10 sinnum ríkari en þú . Ella svaraði : það er allt í lagi , allt hans er mitt og allt mitt er hans . KAZAM..... og hún varð ríkasta kona heims. Þá sagði froskurinn : Jæja þá áttu aðeins eina ósk eftir , hver er hún ? Ella svaraði : Ég vil fá vægt hjartaáfall.
KONUR ERU KLÁRAR ,
EKKI ABBAST UPP Á ÞÆR 
Nú er Árný á leið til París þar sem interrailið hennar byrjar, svo er hún farin í skiptinám til Prag.. gaman hjá henni 
Og Elsa og lilja eru farnar til Spánar í handboltaferð...
Og Tinna er að fara til París...
Og ég og Arna erum að fara til Sardiníu með handbó að keppa í Meistaradeildinni...
Og grey Björk og Helga eru ekkert að fara...
Well bæ